Vöggukvæði | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra
Viðm.ártal:≈ 1850
Tímasetning:1850
Flokkur:Vögguljóð

Skýringar

Vöggukvæði kom fyrst út í Pilti og stúlku 1850 og síðan í Snót 1865.
1.
Litfríð og ljóshærð
og létt undir brún,
handsmá og hýreyg
og heitir Sigrún.
2.
Viska með vexti
æ vaxi þér hjá!
veraldar vélráð
ei vinni þig á!
3.
Svíkur hún seggi
og svæfir við glaum,
óvörum ýtir
í örlaga straum.!
4.
Veikur er vilinn
og veik eru börn;
alvaldur, alvaldur
æ sé þín vörn!
5.
Sofðu mín Sigrún,
og sofðu nú rótt!
guð faðir gefi
góða þér nótt!