Kvæði fyrir minni barnaskóla Seltirninga 5. jan. 1883 | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Kvæði fyrir minni barnaskóla Seltirninga 5. jan. 1883

Fyrsta ljóðlína:Um aldur þökk sé þeim er kvað
bls.55
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) fer- og þríkvætt aBaBaBaB
Viðm.ártal:≈ 1875
Tímasetning:1883
1.
Um aldur þökk sé þeim er kvað
að þekkingin er veldi,
því einni þekking auðnast það
sem enginn gjörlegt héldi.
Hún sældum fyllir snauðust lönd
og sönnun reynslan færir
að æ því meiru orkar hönd
sem andinn meira lærir.
2.
Og þennan hafið sannleik séð,
þér sæmdarbændur, líka
er hreinum rausnar huga með
þér hófuð stofnun slíka
og frægjast skal sú framför merk
til fróðleiks hinum ungu
þó meðvitund um mannkært verk
sé meira en lof á tungu.
3.
Þér óskað hafið öllu meir
að ungir mættu fræðast
sem alast nú, – og einnig þeir
sem ennþá munu fæðast
og alltaf kvað hin innri raust
og ýtti drengjum bestu;
því stendur þetta steinhús traust
og stofnun veitir festu.
4.
Og þú, sem vannst með alúð æ,
þú uppfræðarinn þarfi;
að græða það hið góða fræ,
hve gladdi þig sá starfi!
Svo ítra köllun áttu hér
að æðri þú ei finnur;
í húsi nýju heill sé þér
og hverjum sem þar vinnur.
5.
Þér, ýtar knáir æginn við,
sem erjið djúpið kalda,
þér glæðið mennt og góðan sið
og girnist áfram halda.
Ó, blessist ykkar byggðin fríð
með blómsturríkum arði
og eflist skólinn alla tíð
sem ykkar heiðursvarði.