Loreley | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Loreley

Fyrsta ljóðlína:Eg veit ei hvað því veldur
Höfundur:Heine, Heinrich
bls.38–39
Viðm.ártal:≈ 1850
Tímasetning:1858
1.
Eg veit ei hvað því veldur,
að vakna raunir mér,
né Huldar sagan heldur
úr huga mínum fer.
2.
Að húmi tekur halla
og hægan niðar Rín,
en gnípu efst um alla
enn aftanljóminn skín.
3.
Á bergi björt hin mæra
þar brúður litin er:
á glisið glitrar skæra,
hún greiðir lokka sér.
4.
Hún kambi gulls þá greiðir
og gelur við af mátt,
svo dynur um loft og leiðir,
því lagið er svo dátt.
5.
Það villir ver á fleyi
og vekur hugarþrá,
hann gá’r að öldum eigi,
vill eina hana sjá.
6.
Svo loks hann lætur haldið
í lúðurinn heljar inn –
því Lóreley hefur valdið
og ljóðagaldurinn.