Á vatninu | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Á vatninu

Fyrsta ljóðlína:Við sjóndeildarbaug rís borgin
Höfundur:Heine, Heinrich
bls.30
Viðm.ártal:≈ 1900
1.
Við sjóndeildarbaug rís borgin
langt burtu með turnafjöld
og þokumynd sviplík sýnist
er sígandi rökkvir kvöld.
2.
Sig gárar vatnið gráa
er gustar kvöldkul um vog
og ræðarinn rær mig áfram
með raunaleg áratog.
3.
Og eitt sinn enn lyftist sólin,
á unnirnar kvikar skín
og titrandi bendir hvar týndist
hin tregaða ástin mín.