Ganga út | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Ganga út

Fyrsta ljóðlína:Þetta er ekki kröfuganga
bls.1. árg. bls. 71
Bragarháttur:Óháttbundið ljóð
Viðm.ártal:≈ 2000
Tímasetning:2002
Þetta er ekki kröfuganga
um slagæð
bæjarins

ekki líkfylgd forsetans
(hann tórir)

heldur allsherjar
flótti
úr gömlum torfbæjum því

þar eru engar lyftur
og enginn nennir
lengur
að slá þökin