Þjófabæn hin nýja | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Þjófabæn hin nýja

Fyrsta ljóðlína:Sjáðu þingkæn þríeining!
Höfundur:Jón Thoroddsen
bls.313–314
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) ferkvætt aBaBCC
Viðm.ártal:≈ 1850
1.
Sjáðu þíngkæn þríeining!
þjófa ætt og synir hvinna
komum nú í hnepptum hring
hér til skarar fóta þinna;
þér af hjarta þakkir gjörum,
þiggðu lof af barna vörum.
2.
Að oss sækir illur her
ef vér hnuplum kindargæru,
glötun bráðla búin er
bæði vorri húð og æru;
ó, þú skjöldur erkibófa,
yfirskyggðu landsins þjófa!
3.
Þú í mildi segir sé
seggja ekki bannað neinum
ull að taka’ af annars fé,
ef það verði gjört í leynum.
Nú skal bænda rollur rýja,
til ráða þinna’ og náðar flýja.
4.
Það oss eykur þor og dug:
þú kannt snúa málum öllum,
náð þín veitir nýjan hug,
við nýjan stuld ef þig áköllum.
Dýrð sé þér í dimmu leyni!
dýrð sé þér hjá skráa meini!
5.
Á þig treystum allir vær,
undu hjá oss vel og lengi!
vora tötra þú ef þvær
þér skal gefa smjör og rengi,
einnig hríngja hátt á fjöllum
til heiðurs þér með stolnum bjöllum.