Vögguvísa | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Vögguvísa

Fyrsta ljóðlína:Illa dreymir drenginn minn
Höfundur:Páll Ólafsson
bls.311
Viðm.ártal:≈ 1875
Illa dreymir drenginn minn.
Drottinn, sendu engil þinn
vöggu hans að vaka hjá,
vondum draumum stjaka frá.
Láttu’ hann dreyma líf og yl,
ljós og allt, sem gott er til,
ást og von og traust og trú.
Taktu’ hann strax í fóstur nú.
Langa’ og fagra lífsins braut
leiddu’ hann gegnum sæld og þraut.
Verði hann besta barnið þitt.
Bænheyrðu nú kvakið mitt,
svo ég megi sætt og rótt
sofa dauðans löngu nótt.