Vorvísur | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Vorvísur

Fyrsta ljóðlína:Vorið góða, grænt og hlýtt
bls.235–236
Bragarháttur:Ferskeytt (ferskeytla)
Viðm.ártal:≈ 1850
Flokkur:Náttúruljóð

Skýringar

Jónas hefur sjálfur talið vísurnar þýddar eftir Heine en erfitt hefur reynst að finna þeim stað hjá honum. Vafalaust hefur þó Jónas haft eitthvert ljóða Heines í huga sem vakað hefur að baki vísna hans. (Sjá skýringar við vísurnar í Ritverk IV. Skýringar og skrár, bls. 210.)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó
aftur að fara í göngur.