SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3126)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Norður fjöll (ferðakvæði) 3SpretturBálkur:Norður fjöll (ferðakvæði)
Fyrsta ljóðlína:Ég berst á fáki fráum
Höfundur:Hannes Hafstein
bls.47–48
Viðm.ártal:≈ 1875
Tímasetning:1882
Skýringar
Birtist í Verðandi, 1. árg. 1882, bls. 131–132.
Ég berst á fáki fráum
fram um veg. Mót fjallahlíðum háum hleypi ég. Og golan kyssir kinn. Og á harða, harða spretti hendist áfram klárinn minn. Það er sem fjöllin fljúgi móti mér, sem kólfur loftið kljúfi klárinn fer. Og lund mín er svo létt, eins og gæti’ eg gjörvallt lífið geisað fram í einum sprett. Hve fjör í æðar færist fáknum með! Hve hjartað léttar hrærist! Hlær við geð, að finna fjörtök stinn! Þú ert mesti gæðagammur, góði Léttir, klárinn minn! Hve hátt hann lyftir hnakka, hvessir brá, og hringar hreykinn makka. Horfið á ! Sko, faxið flaxast til! Grundin undir syngur söngva slétt við Léttis hófaspil. En læg nú sprettinn Léttir, líttu á, við eigum brekku eftir, hún er há. Nú æjum við fyrst ögn áður söng og hófa hljóði förum rjúfa fjallaþögn. |