Konráð Gíslason | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Konráð Gíslason

Fyrsta ljóðlína:Hans brann glaðast innra eldur
bls.214–215
Bragarháttur:Fimm línur (tvíliður) ferkvætt AbAAb
Viðm.ártal:≈ 1900
1.
Hans brann glaðast innra eldur,
hið ytra virtist sumum kalt;
við alla var hann fjöl ei felldur,
fann ei skyldu sína heldur
að heiðra sama og aðrir allt.
2.
Öllu því, sem Íslands byggðir
eiga að fornu og nýju gott,
unni hann; feðra táp og tryggðir
taldi hann vorar bestu dyggðir,
en – út ef dæju – ólánsvott.
3.
Forn í skapi og forn í máli
farinn er hann til þeirra á braut,
er sálir áttu settar stáli;
situr hann nú hjá Agli og Njáli,
Abrahams honum er það skaut.
4.
Fóstbræðra þar finnur hann þrenning,
fágætt var það drengja val;
hörð var þeirra en heilmæm kenning,
um heillir lands og þjóðar menning
aftur munu þeir eiga tal.