Sumarkveðja | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Sumarkveðja

Fyrsta ljóðlína:Sjá, nú er liðin sumartíð
bls.1
Bragarháttur:Þrjár línur (tvíliður) ferkvætt
Viðm.ártal:≈ 1775
Tímasetning:1770
Flokkur:Náttúruljóð

Skýringar

Undirtitill: Kveðin 1770.
1.
Sjá, nú er liðin sumartíð
hverrar ljómi blíðu blómi
hruman áður hressti lýð.
2.
Nú sjáum vér hve fastan fót
allt það hefur, gæfan gefur.
Gráts eru hér og gleði mót.
3.
Óðfluga á tímans vagni vær
öllum stundum áfram skundum,
enginn honum aftrað fær.
4.
Þannig smám saman líður leið,
sem bát siglandi ber að landi
bára hver, sem yfir skreið.
5.
Hver mæðustund, sem fram hjá fer,
ei að hendi aftur vendir,
styttir svo það eftir er.
6.
Misseraskipti þessi því
öðrum nær oss æðri færa
þá tíminn breytist eilífð í.
7.
Afmáluð sýnir fölnuð fold
dauðans spor á verum vorum,
eins því viðnar hey og hold.
8.
Upprisu sumar ímynd ber,
guðs því kraftur orkar, aftur
að nýjum gróða verðum vér.
9.
Svo lengi guð oss ævi ann
tímann brúkum, líka lúkum
lofgjörð þeim, sem gaf oss hann.
10.
Lífernið illt um liðna tíð
klökkir játum, glæpi grátum,
guðs afbiðjum hefndarstríð.
11.
Þökkum og ljúfri þiggjum önd
gáfur þær oss gjörði færa
sumarið frá herrans hönd.
12.
Komanda tökum vetri vel,
beiskt og sætt oss ætíð ætti
eins kært vera, líf og hel.
13.
Svo þig úr garði syngjum nú,
sumartíð þó langt um líði,
vorra húsa vitja þú.
14.
Þann er réð senda þig af hæð
oss vanfæra að endurnæra,
lofi sérhver lífsfull æð.