Yfirlit | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Yfirlit

Fyrsta ljóðlína:Í lífinu ægir öllu saman
bls.79–80
Viðm.ártal:≈ 1925
1.
Í lífinu ægir öllu saman
oft er það bæði skömm og gaman,
hýrt á svip og frítt í framan,
felur að baki harma.
Sorgarbikarinn svellur oft á barma.
2.
Þeir, sem geymd er gröf í elli
göngu þreyta’ á hrauni og svelli
undir lífsins ystafelli
frá ýmsu hafa’ að segja.
Um meinin stærstu margur kýs að þegja.
3.
Mín er orðin mislit saga,
man ég hlýja sólskinsdaga,
vor og blóm um hús og haga,
heiða nótt og bjarta,
opinn faðm með ástarglóð í hjarta.
4.
Séð hef ég líka sumri halla,
svarta nótt frá grund til fjalla,
vænstu blómin visna og falla,
vetrarhríðum kviðið,
í skærum átt við skugga og kulda liðið.
5.
Haukana góðu missti eg mína,
mörgu er eg búin gulli að týna,
sólin vill mér sjaldan skína,
svefninn flýr um nætur.
Löng er nótt þeim liggur einn og grætur.
6.
Stundir hverfa, daga dvína,
í deplum tekur senn að hlýna,
í hilling sé eg hauka mína
úr heiðríkjunni benda.
Gaman væri í vörunum þeim að lenda.