Skarphéðinn í brennunni [frumútgáfa í Verðandi] | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Skarphéðinn í brennunni [frumútgáfa í Verðandi]

Fyrsta ljóðlína:Buldi við brestur
Höfundur:Hannes Hafstein
Heimild:Verðandi.
bls.60
Bragarháttur:Fornyrðislag
Viðm.ártal:≈ 1875
Tímasetning:1882

Skýringar

Kvæðið eins og það birtist í fyrsta sinn í Verðandi. Stafsetning samræmd til nútímahorfs.
Sjá einnig kvæðið eins og það birtist í endanlegri útgáfu höfundar í ljóðasafni hans 1921 (2. útg. 1925).
Buldi við brestur, 
brotnaði þekjan; 
reið niður rjáfur 
og rammir ásar. 
 
Skall yfir eldhafið ólgandi, logandi, 
eldvargar runnu fram hvæsandi, sogandi. 
Reykurinn glóðþrunginn gaus upp úr kafinu 
gaflaðið eitt stóð sem klettur úr hafinu. 
 
Nár var þá Njáll 
og nár var Bergþóra. 
Burtu var Kári 
og brunninn Grímur, 
Höggvinn Helgi — 
Héðinn stóð einn 
tepptur við gaflaðið 
og glotti við tönn. 

Gulrauðar glóðir 
glampa og braka; 
blóðroðin birta 
blaktir um garpinn; 

skín hún á andlitið skarpfölt og tannirnar, 
skiptandi blæ, meðan eldslogahrannirnar
flétta úr eldtungum umgjörðir titrandi 
utan um hetjuna, bjartar og glitrandi. 
 
Hélt’ann á rammri 
Rimmugýgi: 
„Hvað er nú, öx mín, 
hitnar þér nokkuð? 
þú skyldir eigi 
svo þurrmynnt vera, 
væri í annað 
en eld að bíta.“ 

Glaðlegur geisli 
glóði á blaði; 
stirndi í stál 
og stæltar eggjar. 

Skarphéðinn klappaði skínanda stálinu: 
„Skilaðu kveðju frá Héðni í bálinu“ 
öxina greip, og í gaflaðið hjó’enni 
griðastað langt inn í viðunum bjó’enni. 
 
Leit hann á eldbranda 
aðfallandi: 
„Hæfir ei Héðni 
vopnlausum vera.“ 
Tók hann þá brennanda 
brand einn mikinn, 
horfði hlæjandi 
á hann og bálið. 

„Þú skalt, brandur, 
vopn mér vera, 
exi eldvafin 
að eldaþingi.“ 

Færðist að eldurinn brestandi, brakandi, 
báldrekar skriðu fram eldmakka skakandi, 
lögðust að fótum hans, fæturna sleikjandi 
flakandi tungum, og glóðmökkum reykjandi. 
 
Vitið að Héðinn 
hita þolir, 
kempan kvað, 
og kyrtil sinn 
losaði hægt 
frá loðnu brjósti, 
brenndi þar kross 
með brandi sínum. 

Beit svo á kampinn, og krosslagði armana, 
kallmennskuró sló um ennið og hvarmana. 
Ljómandi kringum hann logarnir kvikuðu 
ljósgeislar fagnandi á honum blikuðu. 
 
Dimmt er í skála, 
dökkir mekkir 
hefjast úr ösku 
og hrundum rústum. 
Inni við gaflaðið 
í ösku stendur 
Héðinn örendur 
með opnum sjónum. 
Heyrzt ei hafði 
hósti né stunur.