Völuvísa | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Völuvísa

Fyrsta ljóðlína:Eitt verð ég að segja þér áður en ég dey
bls.57
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) aoaaaaaO
Viðm.ártal:≈ 1950
Eitt verð ég að segja þér áður en ég dey,
enda skalt þú börnum þínum kenna fræði mín,
sögðu mér það álfarnir í Suðurey,
sögðu mér það dvergarnir í Norðurey,
sögðu mér það gullinmura og gleymérei
og gleymdu því ei:
að hefnist þeim er svíkur sína huldumey,
honum verður erfiður dauðinn.