Draumur hjarðsveinsins | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Draumur hjarðsveinsins

Fyrsta ljóðlína:Í birkilaut hvíldi eg bakkanum á
bls.56–57
Viðm.ártal:≈ 1875

Skýringar

Fjallað er um kvæðið í Austra 1897 (nr. 10, bls. 40) eins og það sé ekki alveg nýtt. Því er skotið á viðmiðunarártalið 1875.
1.
Í birkilaut hvíldi eg bakkanum á,
þar bunaði smálækjarspræna.
Mig dreymdi að í sólskini sæti eg þá
hjá smámey við kotbæinn græna.
2.
Og hóglega í draumnum með höfuð eg lá
í hnjám hinnar fríðustu vinu
og ástfanginn mændi eg í augun hin blá
sem yfir mér ljómandi skinu.
3.
Úr fíflum og sóleyjum festar hún batt,
þær fléttur hún yfir mig lagði.
Þá barðist mér hjartað í brjóstinu glatt
en bundin var tungan og þagði.
4.
Loks hneigir hún andlitið ofan að mér
svo ilmblæ af vörum eg kenni.
Ó, fagnaðaryndi, hve farsæll eg er,
nú fæ eg víst kossinn hjá henni.
5.
En rétt þegar nálgaðist munnur að munn,
að meynni var faðmur minn snúinn,
þá flaug hjá mér þröstur svo þaut við í runn
og þar með var draumurinn búinn.