Hvíld | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Hvíld

Fyrsta ljóðlína:Dúnmjúkum höndum strauk kulið um krónu og ax
bls.99
Viðm.ártal:≈ 1950
Tímasetning:1940

Skýringar

Birtist í ljóðabókinni Sporum í sandi, 1940.
1.
Dúnmjúkum höndum strauk kulið um krónu og ax
og kvöldið stóð álengdar hikandi feimið og beið.
Að baki okkur týndist í mistrið hin langfarna leið
eins og léttstigin barnsspor í rökkur hins hnígandi dags.
2.
Og við settumst við veginn, tveir ferðlúnir framandi menn,
eins og fuglar sem þöndu sinn væng yfir úthöfin breið.
Hve gott er að hvíla sig rótt eins og lokið sé leið
þótt langur og eilífur gangur bíði manns enn.