Ræfilskvæði | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Ræfilskvæði

Fyrsta ljóðlína:Ég er réttur og sléttur ræfill
bls.13
Viðm.ártal:≈ 1925
Tímasetning:1934

Skýringar

Hrynjandi kvæðisins er að því leyti frjálsari en hátturinn gefur til kynna að dreifin tvíliða og þríliða í fyrstu tveimur hendingum hvers vísuorðs er nokkuð frjáls. Þá getur hinn frjálsi forliður verið tvíkvæður.
1.
Ég er réttur og sléttur ræfill,
já, ræfill sem ekkert kann.
Ég hélt þó hér forðum, að guð og gæfan
myndi gera úr mér afbragðs mann.
2.
Ef til vill framsóknarfrömuð,
því fátt er nú göfugra en það,
og ef til vill syngjandi sjálfstæðishetju
með saltfisk í hjartastað.
3.
En allt lýtur drottins lögum,
í lofti, á jörð og í sjó.
Ég eltist og snýst við minn eigin skugga
og öðlast ei stundar ró.
4.
Sem réttur og sléttur ræfill
ég ráfa um stræti og torg
með hugann fullan af hetjudraumum,
en hjartað lamað af sorg.