Nú er sumar | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Nú er sumar

Fyrsta ljóðlína:Nú er sumar / gleðjist gumar
bls.41
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) AAbCCb
Viðm.ártal:≈ 1875

Skýringar

Aðeins 1., 3. og 6. erindi er prentar í Skólaljóðum.
1.
Nú er sumar,
gleðjist gumar,
gaman er í dag.
Brosi veröld víða,
veðurlagsins blíða
eykur yndishag.
2.
Veðra-höllin,
vellir, fjöllin,
vötn og fuglar smá.
Benda blítt og kalla,
burt með frestun alla.
Lagsmenn leggið á.
3.
Látum spretta,
spori létta,
spræka fáka nú.
Eftir sitji engi,
örvar, víf og drengi
sumarskemmtun sú.
4.
Sveinar prúðir,
sætar brúðir,
saman undir hlíð.
Hýrt með glösum hringja,
hlæja, dansa, syngja.
signa sumartíð.
5.
Fjalls und fæti,
sumarsæti,
sveipar blómgun hrein.
Vænst er birki og víðir,
vel er þeim sem prýðir
hatt sinn grænni grein.
6.
Tíminn líður,
tíminn bíður,
sælan sólskinsdag.
Yndi er úti á grundum,
yndi, heim þá skundum
seint um sólarlag.