Á rústum beitarhúsanna frá Víðimýri | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Á rústum beitarhúsanna frá Víðimýri

Fyrsta ljóðlína:Á þessum stað reis íslensk örbirgð hæst
bls.141
Viðm.ártal:≈ 1950
Tímasetning:1942

Skýringar

Birtist í ljóðabókinni Ferð án fyrirheits, 1942.
1.
Á þessum stað reis íslensk örbirgð hæst.
Og ennþá logar heift hins smáða manns
í grænni rúst hins hrunda beitarhúss,
sem hýsti forðum eymd og þjáning hans.
2.
Vor saga geymir ýmsan auman blett,
sem illa þolir dagsins ljós að sjá.
Og það mun margan undra, ef að er gætt,
hve íslensk menning reyndist stundum smá.
3.
En flest er breytt og fært í nýrra horf.
og fólkið mannast óðum norður hér.
Þeir finna nú, hve falslaus snilld þín var.
Ég, forsmáð skáld að sunnan, heilsa þér.