Úr fréttabréfi 1838 | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Úr fréttabréfi 1838

Fyrsta ljóðlína:Sundur gliðna gjár það sinn
bls.184–185
Bragarháttur:Stikluvik – þríhent
Viðm.ártal:≈ 1850
Tímasetning:1838
Flokkur:Ljóðabréf
1.
Sundur gliðna gjár það sinn
grjót úr fjöllum hrundi,
varð áriðni voskeytinn
vor næstliðna jarðskjálftinn.
2.
Þeim er förum fuglveiðar
farið vers til höfðu,
skall að vörum skelfingar,
skriða á fjöru Drangeyjar.
3.
Hlífði rekkum - hann sem á
himins ráð – með furðu,
skil þó ekki skatna sá
skriðu mekki fyrir þá.
4.
Meiðsl þar einum urðu senn,
á honum þvitar börðu,
gífurt hvein svo grjóthríðen
gnúðu steinar kringum menn.
5.
Þóftur galtar þoldu rið
þeirri í feikna titran,
skvampaði saltið skætt á hlið
skalf þar allt og drundi við.
6.
Þau við undur ýta sló
æðra þungt í brjósti,
málma þundar mars af þró
margir undan hrukku í sjó.
7.
Meðan ei strindur meinsköp rauf
máttu gnötra viður,
sigluhindur sels um klauf
svo sem vindur hristi lauf.
8.
Annars staðar fjöllin fól,
feikna reyk, af hruni,
allt við það svo undir gól,
endurkvað í Tindastól.