Kallinn Þorri 1744 | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Kallinn Þorri 1744

Fyrsta ljóðlína:Þorrann hvíta seggir sjá
bls.5
Bragarháttur:Samhent – hringhent (hagkveðlingaháttur)
Viðm.ártal:≈ 1750
Tímasetning:1744
Flokkur:Þorrakvæði
1.
Þorrann hvíta seggir sjá,
so er að líta fjöllin há,
ærnar sýta hólum hjá,
hrossin bíta ekki fá.
2.
Hann er hingað kominn kær,
kann að þyngja um gamalær,
fylin stinga að falli nær
og feiti ringa hrossalær:
3.
Konur allar kveð eg þess
kasti á palla og búi sess,
so má falla ef syngið vess
sjálfur kallinn verði hress.
4.
Taki móti honum hver,
heitir snót á bænum hér,
blíðu hótin brúki þér,
best á fótum verma ber.
5.
Hafið búna hvílu vel,
hressið lúna kríka og stél,
mjólkið kúna í krákuskel,
kætið brún og sinnis þel.