Vesturheimsferðir | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Vesturheimsferðir

Fyrsta ljóðlína:Æðandi svífur ýta þjóð
bls.61-62
Viðm.ártal:≈ 1875
1.
Æðandi svífur ýta þjóð
á arnarvængjum til Brasilíu,
þar alda svöl í suðri hlýju
kveður við strendur ástaróð,
þar aftangeisli unaðsljós
í aldingulli titrar björtu,
þar sem að situr svarteyg drós
og sveina ungra töfrar hjörtu.

2.
Köld þó að þyki Kjartans grund,
ég kasta ei á hana þungum steini.
Þótt margur hennar mögur kveini,
gefur hún mörgum glaða lund.
En þeir mega fara fyrir mér,
já! fara og leita að gæfu sinni,
því hana að finna ekki er.
Hún á ekki heima í veröldinni.