Ad lectorem | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Ad lectorem

Fyrsta ljóðlína:Býður ritning ræða
Bragarháttur:Dróttkvætt
Viðm.ártal:≈ 1600
1.
Býður ritning ræða,
ráðholl, um verk náða,
fríð með fögrum kvæðum
og fróðu sálma hljóði.
Guðbrandur af góðu
greiður á prent nam leiða
fræðibækur báðar
er bjóðast frómum þjóðum.
2.
Landi lýsir blindu,
lyndisklár vel hindrar
vonda aftrú, endir
undrum myrkra blundinn.
Grandvar guðsmann sýndi
grundvöll lífs og stundar.
Mundur miðlist öndum
myndugir friðar yndis.
3.
Öld beri Ísafoldar
aldrei lund svo kalda
að gjaldi ei Guði með snilldum
gilda þakkarskyldu
er vildi í villu höldnum
veldis ysta feldi,
mildi orðs alvaldur,
elding skíni að kveldi.