Það fimmta orð Kristí á krossinum | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 42

Það fimmta orð Kristí á krossinum

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Í sárri neyð / sem Jesús leið
bls.39r–40r
Bragarháttur:Sjö línur (tvíliður) tví- og þríkvætt aaBcccB
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Tón: Eins og sitt barn
1.
Í sárri neyð,
sem Jesús leið,
sagði hann glöggt: Mig þyrstir –
so ritning hrein
í hvörri grein
uppfylltist ein.
Um það mig ræða lystir.

2.
Strax hljóp einn að
sem heyrði það,
hitta njarðarvött kunni;
lét á reyrprik,
drap í edik
með ill tilvik
og bar Jesú að munni.

3.
Forundrast má
mín sál þar á,
maðurinn hvör þess gætir,
að hann sem ráð
hefur með dáð
á himni og láð,
hörmung þvílíkri mætir.

4.
Hann, sá sem vín
af valdi sín
úr vatni sætt tilreiddi,
með sorgarskikk
fékk súrt edik
fyrir svaladrykk
þá sárt hann þorstinn neyddi.

5.
Því mundi ei hér
til hlífðar sér
herrann edikið líka
sem vín ágætt
gjöra vel sætt
fyrst gat það bætt
hans guðdómsmaktin ríka?

6.
Komin var tíð,
kraftaverk fríð
Kristur ei gjöra skyldi.
Hin stundin þá
fyr hendi lá,
hryggð, kvöl og þrá
herrann vor líða vildi.

7.
Kraftaverk hrein
kenndu þá grein
að Kristur Guðs sonur væri.
En kvölin hans
sýndi til sanns
að syndugs manns
sektir og gjöld hann bæri.

8.
Guðs einkason
gjörðist vor þjón
þá græddi hann mein og kvíða.
En offurlamb best
hann orðinn sést
fyr utan brest
í því hann kvöl nam líða.

9.
Af stríði því,
sem stóð hann í,
styrkleiki manns náttúru
þreytast mjög vann
því þyrsti hann,
þáði vökvann
þó af ediki súru.

10.
Í annan stað
merk, maður, það
og minnst þess hvörju sinni
að herrann Krist
hefur mest þyrst
af ást og lyst
eftir sáluhjálp þinni.

11.
Ó, maður, nú
þenk þar um þú;
þinn hugur blygðast skyldi.
Guð þyrstir hér
að hjálpa þér
en hjarta þitt er
óþyrst eftir hans mildi.

12.
Heyr þú, sál mín,
talar til þín
tryggðabrúðguminn góði:
Þyrstur eg er
í hryggðum hér,
so hjálpi eg þér
úr hættu kvalanna flóði.

13.
Ber honum síst,
þess bið eg víst,
beiskan drykk hræsnisanda.
Orðin hans hrein
á alla grein
fyr utan mein
óbrjáluð láttu standa.

14.
Upp á orð þín
svarar sál mín,
sorgin þó málið heftir:
Sjálf þyrsti eg nú,
þýði Jesú,
og það veist þú
þinni miskunnsemd eftir.

15.
Ekki er hjá mér
það þyrstum þér
þori eg nú fram að bjóða
nema fá tár,
trú veik, þó klár,
sem til þín stár.
Tak það og virð til góða.

16.
Lof, dýrð sé þér,
lausn fékkstu mér
og lést þig so miklu kosta.
Hjartað á ný
huggast af því
að eg er frí
frá eilífum kvalaþorsta.


Athugagreinar

Amen