Um yfirskriftina yfir krossinum | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 35

Um yfirskriftina yfir krossinum

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Útskrift Pílatus eina lét
bls.34r–35r
Bragarháttur:Tíu línur (tvíliður+) fer- þrí- og tvíkvætt:aBaBccDeeD
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Tón: Náttúran öll og eðli manns.
1.
Útskrift Pílatus eina lét
yfir krossinum standa:
Jesús nefndur af Nasaret,
nýr kóngur Gyðingalanda.
Drottni með sann
dómarinn fann
dauðasök öngva hærri.
Margur las það
í þessum stað
því hann var borg so nærri.

2.
Það var ritað og þanninn sett
í þrennslags tungumáli.
Valdsmenn Júða það vissu rétt,
vilja því Pílatus brjáli.
Hann ansar greitt,
ei skyldi neitt
umbreytt og framar tjáði:
Hvað skrifað er
skal standa hér.
So skeði af drottins ráði.

3.
Þar nú á krossi herrann hékk,
hér að, mín sála, gætum,
virðingartitil fagran fékk
með forprís sakleysis mætum,
að hjálparfús
heiti Jesús
heimsins lausnarinn góði
hvör djöfli frá
oss frelsa má
flekklaus með sínu blóði.

4.
Nasarenus hann nefnist þar.
Náttúruspilling manna
fráskilinn einn að vísu var,
vel þekka hlýðni sanna
sýndi hann hreint
ljóst bæði og leynt
lifandi guði einum,
hans tignar son,
trúr, forsjáll þjón,
tryggur í öllum greinum.

5.
Kóngur Gyðinga klár og hreinn
í krafti guðlegum drottnar,
sá Davíðs stól skal erfa einn,
aldrei hans ríki þrotnar.
Ísraels hrós,
heiðinna ljós,
heitinn forfeðrum lengi.
Soddan titel
sómdi rétt vel,
sál mín, þinn herra fengi.

6.
Soddan virðingu vildu hann
vondir Gyðingar sneyða.
Heiftaröfundin í þeim brann,
af því Pílatum beiða
orðtak það brátt
á allan hátt
úrfæra settum máta.
Hann kvað við nei
því það vill ei
þeim drottinn veitast láta.

7.
Dramblátum setur drottinn skammt
með djörfung þeirra og hrekki.
Þeim líðst svo sem hann lofar framt,
lengra komast þeir ekki.
Allt skal mitt traust
efunarlaust
á hans makt jafnan standa.
Hvað munu mér
þá mennirner
mega í nokkru granda?

8.
Í þrennslags tungum var þetta skráð
því að vor herrann mildi
vildi sín elska, ást og náð
allri þjóð boðast skyldi.
Hvört tungumál
með huga og sál
heiðri þig, Jesú góði,
sem kvölin þín
og krossins pín
keypti frá syndamóði.

9.
Gefðu að móðurmálið mitt,
minn Jesú, þess eg beiði,
frá allri villu klárt og kvitt
krossins orð þitt út breiði
um landið hér
til heiðurs þér,
helst mun það blessun valda,
meðan þín náð
lætur vort láð
lýði og byggðum halda.

10.
Handskrift var ein yfir höfði mér
hvör mína sálu grætti.
Önnur stóð, Jesú, yfir þér
sem angrið míns hjarta bætti.
Jesú, þú ert
útvalinn bert.
Undir kóngsstjórnan þinni
árla og síð
um allan tíð
óhætt er sálu minni.


Athugagreinar

Amen