Önnur kristileg játning | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Önnur kristileg játning

Fyrsta ljóðlína:Herra Jesús, hjálpin mín
bls.105
Bragarháttur:Átta línur (tvíliður) fer- og þríkvætt aBaBaBaB
Viðm.ártal:≈ 1600
Tímasetning:1612
1.
Herra Jesús, hjálpin mín,
heyr þú hvörs eg beiði:
Mælskuleysið mildin þín
til mjúkra orða greiði
svo vakna mætti af svöfni sín
synda kroppurinn leiði.
Sannlega hefur þín sára pín
sigrað föðursins reiði.

2.
Mína veit eg marga sekt
móti Jesús ráði;
Satan hefur mig svikið og blekkt,
seint eg þessa gáði;
holdið aumt eg elskaði frekt,
aldrei heim forsmáði;
af því dofnar andleg spekt,
eilífur Guð mig náði.

3.
Þessir hafa mig þrælkað mest
og þjáð í sterku haldi
óvinir þrír sem megna mest,
mörgum koma að gjaldi.
Heimsins óráð hyllist flest
hugurinn dyggða kaldi
en gleymir þeim sem bjargar best,
bót er í Jesú valdi.

4.
Hér til hafa mig hórbörn sjö
heimsins gjört að þvinga:
Dramb og Reiði, dáðlaus tvö
með dauflegum Öfundar stinga,
Ofneyslan vill impra þau
og Ágirnd snilldar þinga,
Lostann mest af Letinni dró
líkamans fýsnin kringa.

5.
Öngvan hafð eg manndóms mátt
móti slægðum fjanda;
því gat heimsins blekking brátt
bægt mér loks í vanda;
innra mann eg angraði þrátt,
illskan holds má granda;
hræðunst eg því hefndar þátt
en hjá mun Jesús standa.

6.
Fer eg nú rétt sem flóttamenn,
þeir fangnir eru í stríði,
burt úr fjötrum óvina en
aftur komast um síðir,
athvarfs leita allir senn
öngvu svo þeir kvíði
en eg til þess járnhliðs renn
sem Jesús ver með prýði.

7.
Flý eg nú til þín, faðirinn minn,
firrtur öllu grandi
síðan mig frelsti sonurinn þinn
og saddi heilagur andi;
hæli slíkt eg hvörgi finn
í hættu veraldar klandri.
Láttu gleðjast þrælinn þinn
á þínu fósturlandi.

8.
Jesús er mitt einka traust,
Jesús læknir meina,
Jesús leiðir efunarlaust
oss á lífsbraut hreina.
Athvarf víst og verndin hraust,
veit eg ei slíka neina.
Helgum föður af hjarta og raust
honum skal lofgjörð greina.

(Vísnabók Guðbrands 1612; útg 2000, bls. 105–106)