Andlátsvers sr. Hallgríms Péturssonar | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Andlátsvers sr. Hallgríms Péturssonar

Fyrsta ljóðlína:Ó, herra Jesú, hjá mér vertu í hörðum deyð
bls.135–136
Bragarháttur:Tólf línur (tvíliður+) sex- fer- og þríkvætt:oaBoaBcDcDcD
Viðm.ártal:≈ 1675
Flokkur:Bænir og vers

Skýringar

Ath. rímskipan aðeins öðruvísi í þessari bæn: abCabCdEdEdE
Ó, herra Jesú, hjá mér vertu í hörðum deyð,
til hjálpar kom, eg beiði þig,
mér í andláti mínu.
Frá andar minnar óvinum mig öllum leið
og eilíflega frelsa þú mig
frá allri eymd og pínu.
Hugga og styrk þú hrellda lund
og hryggva sálu mína.
Annastu mig á andlátsstund
nær afl og kraftar dvína.
Meðtak þú, Jesús, mína önd
í miskunnar hendur þínar.


Athugagreinar

Í útgáfu Ljóðmæla I er farið eftir uppskrift þess í JS 272 4to I, bl. 250r. Það er auk þess varðveitt í tveim öðrum handritum, Í Lbs 238b, bls. 107–108, er það skrifað eftir Nytsamlegri bænabók Lasseniusar, prentaðri á Hólum 1772. Þá er versið einnig í Lbs 436 8vo, bl. 209r. Versið var ekki prentað í Hallgrímskveri.