SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3126)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Passíusálmar 25Um útleiðslu Kristí út þinghúsinuBálkur:Passíusálmar
Fyrsta ljóðlína:Landsdómarinn þá leiddi
Höfundur:Hallgrímur Pétursson
bls.26v–27r
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar
Skýringar
Með lag: Konung Davíð sem kenndi
Fjórtánda vers er birt sem sjálfstætt kvæði að nafni „Son guðs“ í Skólaljóðum. 1. Landsdómarinn þá leiddilausnarann út með sér, Gyðingum andsvör greiddi glögglega og so tér: Þér sjáið þennan hér. Sannlega yður eg segi, sök finnst með honum eigi sem dauðadóms verð er.
2. Þá gekk Jesús út þanninn,þyrni og purpurann bar. Sagði: Sjáið hér manninn, sjálfur dómarinn þar. Gyðingar gáfu svar: Burt með hann, so þeir segja, sá skal á krossi deyja. Ósk þeirra ein sú var.
3. Orð og afsökun giltiengin í þessum stað, heiftin so hugann fyllti, hjartað varð forblindað. Síðast þeir sögðu það, ljóslega lífsstraffs krefði lögmálið því hann hefði gjört sig Guðs syni að.
4. Rétt lög, sem rituð finnast,rangfærðu Júðar hér. Oss ber þar á að minnast, ill dæmi forðunst vér, dómurinn drottins er, hinn þó með heiftum klagi og hreinan sannleik aflagi. Sjái valdsmenn að sér.
5. Þá eg heyri, minn herra,hvörsu þú kvalinn vart, gjörvöll vill gleðin þverra, galstu mín næsta hart því eg braut mikið og margt. En þá mér guðspjöll greina glöggt þitt sakleysið hreina, hjartað fær huggun snart.
6. Athuga, sál mín, ættumútgöngu drottins hér so við rétt minnast mættum hvað miskunn hans veitti þér. Hyggjum að hann út ber þyrnikórónu þétta, þar með purpurann létta, blár og blóðugur er.
7. Með blóðskuld og bölvan stranga,beiskum reyrð kvalahnút áttum við greitt að ganga frá Guðs náð rekin út, hrakin í heljarsút, íklædd forsmánarflíkum, fráskúfuð drottni ríkum, nakin og niðurlút.
8. Ó, synd, ó, syndin arga,hvað illt kemur af þér? Ó, hvörsu meinsemd marga má drottinn líða hér? Þitt gjald allt þetta er. Blindað hold þig ei þekkti þegar þín flærð mig blekkti. Jesús miskunni mér.
9. En með því út var leidduralsærður lausnarinn gjörðist mér vegur greiddur í Guðs náðarríki inn og eilíft líf annað sinn. Blóðskuld og bölvan mína burt tók Guðs sonar pína. Dýrð sé þér, drottinn minn.
10. Út geng eg ætíð síðaní trausti frelsarans undir blæ himins blíðan blessaður víst til sanns. Nú fyrir nafnið hans útborið lík mitt liðið leggst og hvílist í friði, sál fer til sæluranns.
11. Dýrðarkórónu dýradrottinn mér gefur þá. Réttlætisskrúðann skíra skal eg og líka fá upprisudeginum á, hæstum heiðri tilreiddur, af heilögum englum leiddur í sælu þeim sjálfum hjá.
12. So munu Guðs englar segja:Sjáið nú þennan mann sem alls kyns eymd réð beygja áður í heimsins rann, oft var þá hrelldur hann. Fyrir blóð lambsins blíða búinn er nú að stríða og sælan sigur vann.
13. Þá muntu, sál mín, svarasyngjandi fögrum tón: Lof sé mínum lausnara. Lamb Guðs á hæsta trón sigur gaf sínum þjón. Um blessaðar himnahallir honum segjum vér allir heiður með sætum són.
14. Son Guðs ertu með sanni,sonur Guðs, Jesú minn. Son Guðs, syndugum manni sonararf skenktir þinn, son Guðs, einn eingetinn. Syni Guðs syngi glaður sérhvör lifandi maður heiður í hvört eitt sinn. Athugagreinar
Amen
|