Um komu Gyðinga í grasgarðinn | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 5

Um komu Gyðinga í grasgarðinn

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Meðan Jesús það mæla var
bls.7r–v
Bragarháttur:Fimm línur (tvíliður) fer- og þríkvætt aabbb
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Með lag: Heiðrum vér Guð af huga [og sál]
1.
Meðan Jesús það mæla var
mannfjöldi kom í garðinn þar,
Júdas, sá herra sinn forréð,
sveinar prestanna og stríðsfólk með,
skriðbyttur báru, blys og sverð,
búnir mjög út í þessa ferð.
Um það eg framar þenkja verð.

2.
Verður það oft þá varir minnst,
voveifleg hætta búin finnst.
Ein nótt er ei til enda trygg,
að því á kvöldin, sál mín, hygg.
Hvað helst sem kann að koma upp á
kjós Jesúm þér að vera hjá,
skelfing engin þig skaðar þá.

3.
En Júdas hafði áður sagt
auðkenni þeim og so við lagt:
Hvörn eg kyssi, handtakið þann,
höndlið með gætni og bindið hann.
Varastu, sál mín, svik og prett
þó sýnast megi í hylming sett,
drottinn augljóst það dæmir rétt.

4.
En Jesús áður allt fornam
hvað átti við hann að koma fram.
Því gekk hann sjálfur þeim á mót,
þanninn ræddi með kærleikshót:
Að hvörjum leitið hingað þér?
Hópur illmennis aftur tér:
Jesúm naddverska nefnum vér.

5.
Ég er hann, sagði Jesús þá.
Júdas sjálfur stóð flokknum hjá.
Öflugt var drottins orðið það,
allir til jarðar féllu í stað.
Hvað hans óvini hrelldi mest
huggar nú mína sálu best.
Í allri nauð það auglýsest.

6.
Þá eg fell eður hrasa hér
hæstur drottinn vill reiðast mér.
Þá segir Jesús: Eg em hann
sem endurleysti þann syndarann
með mínu blóði og beiskri pín,
bræði, faðir kær, stilltu þín.
Eflaust er það afsökun mín.

7.
Djöfull, synd og samviskan ill
sálu mína þá kvelja vill.
Eins segir Jesús: Eg em hann
sem afmá þína misgjörð vann,
líka sem vindur léttfær ský
langt feykir burt og sést ei því.
Á mig trú þú, svo ertu frí.

8.
Þegar mig særir sótt eða kvöl,
sorgleg fátækt og heimsins böl,
ég veit þú segir: Ég er hann,
Jesús, sem lækna vill og kann.
Auðlegð á himnum áttu víst,
eymd þín og hryggð í fögnuð snýst,
heiminn sigraði eg, hræðstu síst.

9.
Á dauðastund og dómsins tíð,
drottinn, það skal mín huggun blíð.
Orð þitt er sama: Eg em hann
sem inn þig leiði í himnarann.
Þjón minn skal vera þar eg er,
því hefur þú, Jesú, lofað mér.
Glaður eg þá í friði fer.

10.
Ég segi á móti: Ég er hann,
Jesú, sem þér af hjarta ann.
Orð þitt lát vera eins við mig,
elska eg, seg því, líka þig.
Eilíft það samtal okkar sé
uppbyrjað hér á jörðunne.
Amen, eg bið, svo skyldi ske.


Athugagreinar

Amen

(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 42–45)