SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3126)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Passíusálmar 37Annað orð Kristí á krossinumBálkur:Passíusálmar
Fyrsta ljóðlína:Uppreistum krossi herrans hjá
Höfundur:Hallgrímur Pétursson
bls.35v--36v
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar
Skýringar
Með lag: Ef Guð er oss ei sjálfur hjá
1. Uppreistum krossi herrans hjáhans móðir standa náði. Sverðið, sem fyrr nam Símeon spá, sál og líf hennar þjáði. Jóhannes einninn, Jesú kær, jafnt var þar líka staddur nær. Glöggt sá að öllu gáði.
2. Sinni móður hann segja réð:Son þinn líttu þar, kvinna. Við lærisveininn líka með lausnarinn blítt nam inna: Sjá þú og móður þína þar. Þaðan í frá, sem skyldugt var, sá tók hana til sinna.
3. Sá, sem hlýðninnar setti boð,sinni blessun réð heita þeim eð foreldrum styrk og stoð stunda með elsku að veita. Soddan dyggðanna dæmið hér drottinn vor sjálfur gaf af sér börnunum eftir að breyta.
4. Girnist þú, barn mitt, blessun fá,björg lífs og gæfu fína, foreldrum skaltu þínum þá þóknun og hlýðni sýna. Ungdómsþverlyndið oftast nær ólukku og slys að launum fær. Hrekkvísa hefndir pína.
5. Ekkjurnar hafa einninn hérágætis huggun blíða. Jesús allt þeirra angur sér, aðstoð þeim veitir fríða ef þær með hreinum hug og sið halda sig drottins pínu við og hans hjálpræðis bíða.
6. María, drottins móðir kær,merkir Guðs kristni sanna, undir krossinum oftast nær angur og sorg má kanna. Til hennar lítur þar herrann hýrt, huggunarorðið sendir dýrt og forsjón frómra manna.
7. Það reynist oft í heimi hérhlutfall drottins ástvina, hörmungarsverðið sárt þá sker, sæld lífsins gleður hina hvörjir þó Kristum hæða mest; hefur svo löngum viðgengest. Lítt vill því angri lina.
8. En þeir sem Jesúm elska af rót,undir krossinum standa, herrans blóðfaðmi horfa á mót, hvörn þeir líta í anda. Trúar og vonar sjónin sett sár hans og benjar skoðar rétt. Það mýkir mein og vanda.
9. Jesús einninn með ást og náðaftur til þeirra lítur, gefur hugsvölun, hjálp og ráð, harmabönd af þeim slítur. Aðgætin föðursaugun klár öll reikna sinna barna tár; aðstoð þau aldrei þrýtur.
10. Ég lít beint á þig, Jesú minn,jafnan þá hryggðin særir. Í mínum krossi krossinn þinn kröftuglega mig nærir. Sérhvört einasta sárið þitt sannlega græðir hjartað mitt og nýjan fögnuð færir.
11. Þá eg andvarpa, óska og bið,augunum trúar minnar lít eg hvört einast orðið við upp til krosspínu þinnar. Strax sýna mér þín signuð sár, syndugum manni opinn stár brunnur blessunarinnar.
12. Gleðistund holds þá gefur mérGuð minn að vilja sínum upp á þig, Jesú, horfi eg hér hjartans augunum mínum. Auðlegðargæðin líkamlig láttu þó aldrei villa mig frá krossins faðmi þínum.
13. Jónas sat undir einum lund,öngra meina sér kenndi. Hádegissólar hitastund hann ei til skaða brenndi. Jesú krossskugga skjólið hér skýlir þó langtum betur mér fyrir Guðs heiftarhendi.
14. Hvört eg sef, vaki, sit eður stáí sælu og hættum nauða krossi þínum eg held mig hjá horfandi á blóð þitt rauða. Lát mig einninn, þá ævin þver, út af sofna á fótum þér, so kvíði eg síst við dauða. Athugagreinar
Amen
(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 156–161) |