Um Kristí húðstrýking | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 23

Um Kristí húðstrýking

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Pílatus herrann hæsta
bls.25r–v
Bragarháttur:Sjö línur (tvíliður+) þrí- og ferkvætt AbAbcOc
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Með lag: Oss lát þinn anda styrkja
1.
Pílatus herrann hæsta
húðstrýkja lætur þar.
Nakinn við stólpann stærsta
strengdur þá Jesús var.
Stríðsmenn með svipum hröktu hann.
Sál mín, hér sjá og skoða
hvað sonur Guðs fyr þig vann.

2.
Helgasta holdið fríða
frá hvirfli iljum að
drottni varð sárt að svíða,
svall allt af benjum það.
Hvör hans líkama limur og æð
af sárum sundur flakti.
Sú hirting mjög var skæð.

3.
Blessaður dreyrinn dundi
drottins lífsæðum úr,
sem regn það hraðast hrundi
himins í dimmuskúr.
Blánaði hold en bólgnaði und.
Sonur Guðs sárt var kvalinn
saklaus á þeirri stund.

4.
Ég var sem fjötrum færður
fangelsi þungu í,
á önd og samvisku særður,
syndin mín olli því.
Sú dauðleg sálarsóttin hér
um hvörja æð út sér dreifði.
Ekkert fannst heilt á mér.

5.
Svipan lögmálsins lamdi
líf og sál heldur frekt.
Óttinn kvalanna kramdi,
kominn var eg í sekt.
Banvænlegt orðið mitt var mein,
hjartað af hryggðum stundi,
hvörgi fékkst lækning nein.

6.
Sástu þá, Jesú sæli,
sár mín óbærilig.
Til lausnar þínum þræli
því léstu binda þig.
Gekkst so undir þá grimmdarkvöl
að eg kvittaður yrði
við eilíft hryggðarböl.

7.
Sjúkdóm minn sjálfur barstu,
so varð eg heill með því.
Hörmungum hlaðinn varstu,
frá hryggðum er eg nú frí.
Hegning þú leiðst so hefði eg frið.
Benjar þínar mér bættu,
bót sú þar átti við.

8.
Hræðslan vill hjartað krenkja
með hörðum sorgarsting
þegar eg gjöri að þenkja
um þína húðstrýking.
Aví, eg gaf þar efni til.
Þú einn galst þrjósku minnar,
þess nú eg iðrast vil.

9.
Því fell eg nú til fóta,
frelsarinn Jesú, þér.
Láttu mig nafns þíns njóta,
náð og vægð sýndu mér.
Ég skal með hlýðni heiðra þig
nú og um eilífð alla,
þá huggar þú, herra, mig.

10.
Gleðstu, mín sál, mig græddi
Guðs sonar heilagt blóð.
Þó synd og sorgin mæddi,
sjá hér er lækning góð.
Náð fyrir reiði nú er vís.
Brot þrælsins herrann bætti,
bar því síns föðurs hrís.

11.
Skoða þú skyldu þína
skýrlega, sál mín, nú.
Sonur Guðs sig lét pína
so læknuð yrðir þú.
Heilbrigð þjóna þú honum rétt
með trú, hollustu og hlýðni.
Haf gát á þinni stétt.

12.
Þóknist honum að þjaka
þitt hold örkumslum með,
þýðlega því skalt taka.
Þolinmótt hjartageð
ásér drottinn og elskar best.
Lausnara að líkjast þínum
lof er þér allra mest.

13.
Ekkert má sóma síður,
síkátur þrællinn er
þá herrann hörmungar líður.
Haf slíkt í minni þér.
Hryggðarmynd hans er heiður þinn.
Lát mig það læra og halda,
ljúfasti Jesú minn.


Athugagreinar

Amen