Kvöldvísa | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Kvöldvísa

Fyrsta ljóðlína:Hví drúpir laufið á grænni grein?
bls.10
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Hví drúpir laufið á grænni grein?
Hví grætur lindin og stynur hljótt?
Hví glampa daggir á gráum stein,
sem grúfi´ yfir dalnum þögul nótt?
2.
Ég veit hvað þú grætur, litla lind:
Langt er síðan hún hvarf þér frá;
hún skoðar ei framar fallega mynd
í fleti þínum með augum blá.
3.
Ó, manstu, þegar í síðasta sinn
hún settist grátandi' á bakkann þinn
og tár hennar féllu' í tæran straum?
Hún tregaði fölnaðan sumardraum.
Þá hvíslaðir þú að blómum bláum,
að birkihríslum og klettum gráum:
„Hún leiksystir okkar er komin að kveðja.
Með hverju megum við hana gleðja
í hinzta sinn?“
En blóm og steinar
og birkigreinar
hnípin þá mændu í augu hennar inn
og golan stundi
í grænum lundi:
„Nú kyssi ég vanga þinn síðasta sinn.“