Um Kristí játning fyrir Pílató | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 19

Um Kristí játning fyrir Pílató

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Gyðingar höfðu af hatri fyrst
bls.21r–22r
Bragarháttur:Fimm línur (tvíliður+) fer- og þríkvætt aabbb
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Lag: Mitt hjarta hvar til
1.
Gyðingar höfðu af hatri fyrst
harðlega klagað Jesúm Krist,
sem áður sagt er frá.
Landsdómarinn gjörði að gá
glöggt hvað þýðir framburður sá.

2.
Áklögun fyrsta andleg var,
um það Pílatus sinnti ei par,
önnur um skylduskatt.
Hann vissi vel þeir sögðu ei satt,
soddan málum þegjandi hratt.

3.
En sem þeir nefndu kónginn Krist
kom honum þá til hugar fyrst
hvað fyrri heyrði og nam
af Júðum mælt um Messíam,
ef mætti ske það kæmi nú fram.

4.
Pílatí sinni í sumum finnst
sem um Guðs dýrkun hugsa minnst,
höfðingjum hræsna títt,
undirsáta frelsið frítt
fjárplógsgjarnir rækja nú lítt.

5.
Hirðstjórinn spurði herrann þá
hvört hann sé Júða kóngur sá,
en Jesús aftur tér:
Talar þú so af sjálfum þér
eða sögðu aðrir þvílíkt af mér?

6.
Þá varð Pílatí þelið kalt.
Þig hatar, sagði hann, fólkið allt.
Hvað illt hefur þú gert?
Aftur Jesús ansar bert,
er það næsta þenkingarvert:

7.
Mitt ríki er ekki héðan af heim.
Hart mundu annars móti þeim
stríða minn máttarher
sem nú mig seldu í nauðir hér
so næðu ekki Gyðingar mér.

8.
Pílatus aftur ansa vann:
Ertu þó kóngur? sagði hann.
Játaði Jesús því:
Hingað kom eg heiminn í
so herma skyldi eg sannleikinn frí.

9.
Hvör af sannleiknum sjálfur er,
sá mína röddu heyrir hér.
Hæðnissvar hinn til fann:
Hvað er sannleikur? sagði hann.
So gekk út með úrskurðinn þann.

10.
Hér máttu, sál mín, heyra fyrst,
herrann Jesús er kóngur víst,
þó ekki að heimsins hátt.
Soddan vel þú athuga átt,
það eykur gleði hjartanu þrátt.

11.
Kóngstign þín, Jesú, andleg er.
Allir hafa sín völd af þér
höfðingjar hér um heim.
Þú lénar, gefur, lánar þeim
löndin, ríki, metorð og seim.

12.
Fyrir þinn kraft og frelsishönd
forsvara kóngar ríki og lönd
sem er þeim undir lagt.
En móti djöfli og dauðans makt
dugir engin höfðingjaprakt.

13.
Þú hefur sigrað synd og deyð,
sjálfan djöful og vítisneyð,
háðir eitt herlegt stríð
allan so þinn leystir lýð.
Lof sé þér um eilífa tíð.

14.
Andlegt þitt ríki og eilíft er,
orð sannleiksins því rétt stjórnar hér,
þinn veldisvöndur sá
óvini slær mér alla frá.
Í þeim krafti sigra eg þá.

15.
En fyrst þitt ríki andlegt var
um það heimurinn sinnti ei par.
Hann fann ei hofmóð sinn
hjá þér, Jesú, herra minn,
hataði allan góðvilja þinn.

16.
Undrast því, sál mín, ekki þarft
þó aðkast veraldar líðir margt.
Þar um þér þenkja ber:
Ertu enn í útlegð hér,
annars heims þitt föðurland er.

17.
Sannleika kóngsins sannleiksraust
sá þarf að elska hræsnislaust
sem er hans undirmann
því slægð og lygi hatar hann,
hreinhjörtuðum miskunnar ann.

18.
Ef þú, mín sál, í Guði glödd
girnist að heyra kóngsins rödd
gættu þá gjörla hér
hvað boða drottins þjónar þér.
Þeirra kenning raustin hans er.

19.
Rannsaka, sál mín, orð það ört,
að verður spurt: Hvað hefur þú gjört?
Þá herrann heldur dóm
hjálpar öngvum hræsnin tóm.
Hrein sé trú í verkunum fróm.

20.
En sökum þess þú ei saklaus ert
sjálfur spyr þig: Hvað hefur þú gert?
Á hvörn umliðinn dag
iðran gjör og grát þinn hag.
Guðs son bið það færa í lag.

21.
Allt hef eg, Jesú, illa gert,
allt það að bæta þú kominn ert,
um allt því eg kvittur er.
Allt mitt líf skal þóknast þér,
þar til, bið eg, hjálpa þú mér.


Athugagreinar

Amen
7.2 ;mundi; leiðrétt úr ;mundu; í handriti.
(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 98–103)