SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Flokkar
Allt (3126)
Afmæliskvæði (14)
Annálskvæði (1)
Ádeilukveðskapur (1)
Ástarljóð (32)
Baráttukvæði (1)
Biblíuljóð (2)
Brúðkaupsljóð (9)
Bæjavísur (2)
Bænir (1)
Bænir og vers (25)
Eddukvæði (30)
Eftirmæli (41)
Ellikvæði (7)
Formannavísur (22)
Fræðsluljóð (3)
Gamankvæði (31)
Grýlukvæði (8)
Harmljóð (3)
Háðkvæði (4)
Hátíðaljóð (6)
Heilræði (10)
Heimsádeilur (8)
Helgikvæði (47)
Hestavísur (1)
Huggunarkvæði (2)
Hyllingarkvæði (2)
Jóðmæli (3)
Jólaljóð (5)
Kappakvæði (5)
Kvæði um biskupa (6)
Leppalúðakvæði (1)
Lífsspeki (5)
Ljóðabréf (18)
Matarvísur (1)
Náttúruljóð (52)
Rímur (204)
Sagnadansar (52)
Sagnakvæði (4)
Sálmar (417)
Sjóhrakningar (2)
Sorgarljóð (1)
Sónarljóð (14)
Særingar (1)
Söguljóð (13)
Tíðavísur (15)
Tregaljóð (6)
Vetrarkvæði (2)
Vikivakar (13)
Vögguljóð (5)
Ýkjukvæði (5)
Þjóðkvæði (1)
Þorrakvæði (4)
Þululjóð (5)
Þulur (2)
Ættjarðarkvæði (54)
Ævikvæði (6)
Ævintýrakvæði (3)
Passíusálmar 43Það sjötta orð Kristí á krossinumBálkur:Passíusálmar
Fyrsta ljóðlína:Eftir að þetta allt var skeð
Höfundur:Hallgrímur Pétursson
bls.40r--v
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar
Skýringar
Með lag: Allfagurt ljós
1. Eftir að þetta allt var skeð,edikið Jesús smakka réð, þrótt og lífskrafta þverra fann. Það er fullkomnað, sagði hann.
2. Orð þíns herra með ást og trúathuga skyldir, sál mín, þú. Ef þeirra grundvöll sannan sér, sæta huggun þau gefa þér.
3. Fyrst skaltu vita að Guð út gafgreinilegt lögmál himnum af. Hann vill að skuli heimi í hvör maður lifa eftir því.
4. Algjört réttlæti ljóst og leynt,líkama, sál og geðið hreint, syndalaus orð og atvik með af oss lögmálið heimta réð.
5. Hugurinn vor og hjartað séí hreinni elsku rétt brennande, fyr utan hræsni, bræði og bann bæði við Guð og náungann.
6. Hvör þetta gæti haldið rétthonum var lífið fyrir sett en ef í einu út af brá eilíf fordæming við því lá.
7. Enginn maður frá Adam fyrst,eftir þann tíma hann syndgaðist, fullnægju gat því gjört til sanns. Gengur það langt yfir eðli manns.
8. Óbærileg varð allra sekt,eftir því drottinn gekk so frekt, annaðhvört skyldi uppfyllt það eða mannkynið fortapað.
9. Jesús eymd vora alla sá,ofan kom til vor jörðu á, hæðum himna upprunninn af, undir lögmálið sig hann gaf.
10. Viljuglega í vorn stað gekk,var sú framkvæmdin Guði þekk, föðurnum hlýðni fyr oss galt, fullkomnaði svo lögmál allt.
11. En svo að syndasektin skeðsannlega yrði forlíkt með og bölvan lögmálsins burtu máð beiska kvöl leið og dauðans háð.
12. Þá hann nú hafði allt uppfyllt,sem oss var sjálfum að gjöra skylt, og bæta öll vor brotin frí, berlega vildi hann lýsa því.
13. Þess vegna herrann hrópa nam,hartnær á krossi stiginn fram, að oss í voru andláte öll hans verðskuldan huggun sé.
14. Soddan aðgættu, sála mín,sonur Guðs hrópar nú til þín hvað þér til frelsis þéna kann. Það er fullkomnað, segir hann.
15. Fullkomnað lögmál fyr þig er,fullkomnað gjald til lausnar þér, fullkomnað allt hvað fyr var spáð; fullkomna skaltu eignast náð.
16. Herra Jesú, eg þakka þér,þvílíka huggun gafstu mér. Ófullkomleika allan minn umbætti guðdómskraftur þinn.
17. Hjálpa þú mér so hjartað mitthugsi jafnan um dæmið þitt og haldist hér í heimi nú við hreina samvisku og rétta trú.
18. Upp á þessi þín orðin traustóhræddur dey eg kvíðalaust því sú frelsis fullkomnan þín forlíkað hefur brotin mín. Athugagreinar
Amen
(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 174–177) |