Það sjöunda orðið Kristí | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Passíusálmar 44

Það sjöunda orðið Kristí

PASSÍUSÁLMAR
Fyrsta ljóðlína:Hrópaði Jesús hátt í stað
bls.40v–41v
Bragarháttur:Aukin ferskeytla án forliðar
Viðm.ártal:≈ 1650
Tímasetning:1659
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Með lag: Herra Guð í himeríke
Annað lag við þennan sálm er einnig undir lagboðanum: „Vertu Guð faðir, faðir minn“.

Tíunda og nítjánda vers eru birt sem sjálfstætt kvæði, „Guðs hönd“, í Skólaljóðum.
1.
Hrópaði Jesús hátt í stað,
holdsmegn og kraftur dvínar:
Eg fel minn anda, frelsarinn kvað,
faðir, í hendur þínar.

2.
Þú, kristinn maður, þenk upp á
þíns herra beiskan dauða;
að orðum hans líka einninn gá,
eru þau lækning nauða.

3.
Jesús haldinn í hæstri kvöl,
hlaðinn með eymdir allar,
dapurt þá að kom dauðans böl
drottin sinn föður kallar.

4.
Herrann vill kenna þar með þér,
þín ef mannraunir freista,
góðlyndur faðir Guð þinn er,
gjörir þú honum að treysta.

5.
Fyrir Jesúm þú fullvel mátt
föður þinn drottin kalla,
enn þó þig krossinn þvingi þrátt
það mýkir hörmung alla.

6.
Eins og faðirinn aumkar sig
yfir sitt barnið sjúka
so vill Guð einninn annast þig
og að þér í miskunn hjúka.

7.
Einninn sýna þér orð hans klár
ódauðleik sálarinnar.
Þó kroppurinn verði kaldur nár,
krenkist ei lífið hennar.

8.
Hvar hún finnur sinn hvíldarstað
herrann sýnir þér líka.
Hönd Guðs þíns föðurs heitir það;
hugsa um ræðu slíka.

9.
Viljir þú eftir endað líf
eigi þín sál þar heima
undir hönd drottins hér þá blíf,
hans boðorð skaltu geyma.

10.
Láttu Guðs hönd þig leiða hér,
lífsreglu halt þá bestu.
Blessuð hans orð, sem boðast þér,
í brjósti og hjarta festu.

11.
Hrittu ei frá þér herrans hönd
hún þó þig tyfta vildi,
legg heldur bæði líf og önd
ljúflega á drottins mildi.

12.
Hér þegar mannleg hjálpin dvín,
holdið þó kveini og sýti,
upp á hönd drottins augun þín
ætíð með trúnni líti.

13.
Að morgni og kvöldi minnst þess vel,
málsupptekt láttu þína:
Af hjarta eg þér á hendur fel,
herra Guð, sálu mína.

14.
So máttu vera viss upp á,
vilji þér dauðinn granda,
sála þín mætir miskunn þá
millum Guðs föðurs handa.

15.
Hún finnur ekkert hryggðarstríð,
hörmung né mæðu neina,
í friði skoðar ætíð blíð
ásjónu drottins hreina.

16.
Eftirtekt mér það einninn jók,
er eg þess gæta kunni,
andlátsbæn sína sjálfur tók
son Guðs af Davíðs munni.

17.
Bæn þína aldrei byggðu fast
á brjóstvit náttúru þinnar.
Í Guðs orði skal hún grundvallast;
það gefur styrk trúarinnar.

18.
Vér vitum ei hvörs biðja ber,
blindleikinn holds því veldur.
Orð Guðs sýnir þann sannleik þér,
sæll er sá þar við heldur.

19.
Vertu, Guð faðir, faðir minn
í frelsarans Jesú nafni.
Hönd þín leiði mig út og inn
so allri synd eg hafni.

20.
Höndin þín, drottinn, hlífi mér,
þá heims eg aðstoð missi
en nær sem þú mig hirtir hér,
hönd þína eg glaður kyssi.

21.
Dauðans stríð af þín heilög hönd
hjálpi mér vel að þreyja.
Meðtak þá, faðir, mína önd,
mun eg svo glaður deyja.

22.
Minn Jesú, andlátsorðið þitt
í mínu hjana eg geymi.
Sé það og líka síðast mitt
þá sofna eg burt úr heimi.


Athugagreinar

Amen

(Sjá Passíusálmar 1996, bls. 176–181)