Antínóus | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Antínóus

Fyrsta ljóðlína:Að líkams fegurð, limaprýði
bls.386–387
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður) ferkvætt AbAbcc
Viðm.ártal:≈ 1900
1.
Að líkams fegurð, limaprýði,
langt af öðrum þessi bar,
forkunnar úr fögru hýði
fagur andi lýsti þar,
en – sveif æ yfir svipnum göfga
sorg og breiddi vænginn höfga.
2.
Honum allt þó lék í lyndi,
lífsins rósum þakið skeið,
vinskapur og ástaryndi,
aldrei þekkti hann skort og neyð,
en – eins er og hann ekkert huggi,
aldrei hverfur raunaskuggi.
3.
Aðkomandi úr æðra heimi
aðeins dvaldi hann hér um hríð,
ei er kyn þótt ei hann gleymi
„Eyja Sælla“ gleðitíð,
til átthaganna enda flutti hann
eftir jarðlífs tíma stuttan.