Barnasálmur | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Barnasálmur

Fyrsta ljóðlína:Ó ljóssins faðir, lof sé þér
bls.181
Bragarháttur:Sex línur (tvíliður+) fer- og þríkvætt aaBccB
Viðm.ártal:≈ 1900
Flokkur:Sálmar

Skýringar

Það skal tekið fram að síðasta línan er sýnd með endurtekningarmerki, enda samið til söngs.
Sálmurinn er hinn fyrri tveggja með sama nafni sem standa saman í bókinni.
1.
Ó, ljóssins faðir, lof sé þér,
að líf og heilsu gafstu mér
og föður minn og móður.
Nú sest ég upp því sólin skín,
þú sendir ljós þitt inn til mín.
Ó, hvað þú, Guð, ert góður.
2.
Þú býr á háum himnastól
og hefur skapað þessa sól
og alla veröld víða,
þú klæðir grösum fagra fold,
þú fæðir veikan orm í mold
og dýr og fuglinn fríða.
3.
Þig lofa gjörvöll lífsins mál,
þig lofar einkum mannsins sál,
hún þekkir elsku þína.
Ég veit, minn Guð, þú verndar mig,
ég veit, ég á að biðja þig,
sem tilbjóst tungu mína.
4.
Þitt blessað ljósið lýsi mér,
svo lifi ég og fylgi þér
á vísdómsvegi sönnum,
en auk mér þroska, dyggð og dáð,
svo dafni ég í Jesú náð
hjá Guði og góðum mönnum.
5.
Þigg, Guð minn faðir, hug og hönd,
mitt hjarta, vilja, líf og önd,
svo blessuð boð þín geymi.
Að treysta, hlýða, þóknast þér,
sé þúsund sinnum dýrra mér
en fylgja holdi og heimi.