Páll Vídalín Jónsson | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Páll Vídalín Jónsson 1667–1727

FIMM LJÓÐ — 24 LAUSAVÍSUR
Páll var sonur Jóns Þorlákssonar í Víðidalstungu og konu hans, Hildar Arngrímsdóttur lærða. Páll lærði í Hólaskóla og síðar í Kaupmannahöfn. Páll var skólameistari í Skálholti 1690–1696. Hann vann með Árna Magnússyni við að kanna hagi Íslendinga og skrá hina miklu jarðabók á árunum 1702 til 1713. Hann varð lögmaður 1705 en var afsettur 1713. Hann fékk svo lögmannsembætti aftur með hæstaréttardómi 1716 og hélt því til dauðadags. Páll þótti eitt besta skáld sinnar tíðar og einkum urðu lausavísur hans fleygar. Vísnakver Páls lögmanns Vídalíns kom út í Kaupmannahöfn 1897. Jón Þorkelsson sá um útgáfuna og birti fremst í bókinni ritgerð Grunnavíkur-Jóns Um þá lærðu Vídalína.

Páll Vídalín Jónsson höfundur

Ljóð
Bænarvers eignað lögmannninum hr. P.J.S. Vídalín ≈ 1700
Kveðið eftir utanför Árna Magnússonar (1712) ≈ 0
Kveðið í Kaupmannahöfn 1715 ≈ 1715–1716
Uggur ≈ 0
Um tófuna og úlfinn ≈ 1700–1725
Lausavísur
Allur fugl úr eggi skríðr
Athuga þú hvað ellin sé
Árni satt eg ansa vil
Best er að láta brekum af
Brand Skarphéðins hendur
Brosleit armleggs ísa
Ekki smakkast vörunum vín
Enn nærist elskan sanna
Forlög koma ofan að
Gaufari situr gólfi á
Hann fer seinna hrætetrið hann kolur
Horfið á höldar djarfir
Konunni þykir meir en mál
Kúgaðu fé af kotungi
Leiðast tekur himinn og hauður
Nú er gola norðan köld
Nú er hugur minn
Næsta skyggir nú í ál
Pétur fór í dansinn með ansinn
Rjómann vantar randa meiðr
Stoðar lítt að stæra sig
Svo var röddin drauga dimm
Vicelögmaður, vinurinn minn,

Páll Vídalín Jónsson og Steinn Jónsson biskup höfundar

Lausavísa
Hvað vill karl með kossaflens í kvennataki