Eyjaferð (hin síðari) | Kvæðasafn Héraðs­skjalasafns Dalasýslu
Kvæðasafn Héraðs­skjalasafns Dalasýslu

Innskráning ritstjóra

Flokkar

Allt  (2)

Eyjaferð (hin síðari)

Fyrsta ljóðlína:Í mörsugslok á miðjum vetri
Viðm.ártal:≈ 2000
Tímasetning:2008

Skýringar

Upp úr miðjum janúar 2008 sótti hópur manna gamalær og smálömb, sem flutt höfðu verið út í Reykhólaeyjar um haustið, til bötunar. Féð áttu Tómas Sigurgeirsson Mávatúni og Matthías Ólason Hamarlandi. Í föruneyti þeirra voru eftirtaldir: Hlynur Gunnarsson, eigandi dráttarbátsins Heiðnareyjar; kona hans, Viktoría Rán Ólafsdóttir; Kristján Ebenesarson, bóndi á Stað; Matthías Óli Gústafsson; Jón Atli Játvarðarson og Guðjón Dalkvist, höfundur ljóðsins.
1.
Í mörsugslok á miðjum vetri
mátti varla finnast betri
veðursælli vetrardagur.
Var það bænda mikill hagur.
2.
Sækja átti sauði marga,
frá sulti og vosbúð þeim að bjarga,
úr Reykjahóla- háum -eyja.
Hóað var í nokkra peyja.
3.
Fyrst skal telja frækinn slána,
frægan smala nefndan Stjána.
Yngri-Matti, eflingsdrengur,
að honum var mikill fengur.
4.
Á Heiðnarey með Hlyn í brúnni,
hentaði vel að bjóða frúnni
Viktoríu valið sæti.
Vakti það hjá henni kæti.
5.
Gott var að hafa gamla skarfa,
sem gátu nýst til léttra starfa.
Nonni Ját. og Dalli dugðu
að drekka meira en ýmsir hugðu.
6.
Þessu sterka, stælta liði
stjórnuðu með góðum friði,
æðruleysi og engu fumi,
óðalsbændur Matti og Tumi.
7.
Er upp í fjöru sauði sæki.
Zodiak er valið tæki
og prammabotn með breiðu dekki.
Betri tæki finnast ekki.
8.
Ystey geymdi góðan hóp.
gimbrarnar frá Hamarlandi.
Á prammaflotið hraður hljóp.
Hér var allt í góðu standi.
9.
Grensey hafði grasið nóg.
Gamalærnar býsna sprækar.
Í grasi, þangi, grjóti og snjó
greyin voru illa rækar.
10.
Hlaupið, stokkið, hrasað var
á hausinn, síðan risið aftur.
Lengi reyndust rollurnar
ráðabetri en okkar kraftur.
11.
Á endanum þó öllum ná,
eftir svita, tár og dreyra,
því að vægja verður sá
er vitið hefur ívið meira.
12.
Á Leiðólfsey gekk langtum skár,
með lagni náðum flestum ánum.
Aðeins sluppu einar þrjár.
Eina Matti greip í sjánum.
13.
Heim var snúið Heiðnarey
hér var lokið verki.
Skíðakaffið skemmdi ei
né Skoti og Egill sterki.
14.
Upp á Sand var siglt með lið.
Zodiak lagt við stjóra.
Að Mávatúni mættum við
í mat og nokkra bjóra.
15.
Komið var myrkur og kindurnar heim,
kuldi í þreyttum herðum,
er stóðu í fjörunni, starsýnt varð þeim
er stjórnuðu þessum ferðum.
16.
Zodiak úti á legunni lá
langt svo að trauðla var farið.
Tumi samt ætlaði í tækið að ná,
tók þá af Matti skarið:
17.
„Þú ert búinn að þræla nóg,
þetta er í lagi fínu,
ég blautur er fyrir af svita og sjó.
Ég syndi eftir helvítinu.“