Runurím, óreglulegur línufjöldi | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Runurím, óreglulegur línufjöldi

Dæmi

Í þínu nafni uppvaknaður
er eg, Jesú, Guð og maður.
Lof sé þér fyrir líf og gæði,
líkamans heilsu, föt og fæði
og allt það þín óþreytt mildi
aumum mér tilleggja vildi.
Bið eg þig, minn blíði herra,
blessan þína ei lát þverra.
Hegðan minni á hverjum degi
haltu á sönnum dyggðavegi.
Lát mig njóta ungdómsára
er þú barst í manndóm klára.
Gef uppfræði æsku mína
andi þinn fyrir verkan sína
svo í ótta og elsku þinni
ávöxt góðan færa kynni.
Hlýðni, tryggð og trúna bjarta
tendra og nær í mínu hjarta
að mér svo með aldri hrönnum
aukist náð hjá Guði og mönnum.
Heims og satans hrekkjasnörum
hrind frá mér svo ei óvörum
mig ógætinn í sér festi
eður dragi í synd og lesti.
Vernda mig frá voða öllum
vondum dauða og slysaföllum.
Englar þínir að mér gæti
öngvum svo eg meiðslum mæti.
Mitt verklag og miskunn þína
mér lát vera unun mína.
Auk mér skilning orða þinna,
eru þau lampi fóta minna.
Gef mér jafnan gott að læra,
góðlyndum við alla vera,
varfærum í velgengninni,
vongóðum þó raunir finni.
Ljúfi Jesú, með lífi og öndu
legg eg mig í þínar höndur.
Þar vil eg fús að lyktum lenda,
lofaður sértu utan enda.
Hallgrímur Pétursson: Í þínu nafni uppvaknaður

Ljóð undir hættinum