Sonnetta, hálfrímuð | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Sonnetta, hálfrímuð

Dæmi

Ég leita hvítra gleymdra daga, geng
grárokkið hraun, við mjóan troðinn veg
á beygðum runnum brenna gróðurlog
og blakta í storminum sem þungt í fang
mér leggst og strýkur stæltum rökum væng
steinfljótsins brim, um úfin skýjadrög
hrekur hann skúrahjörð; ó láttu mig
hamfarir þínar reyna, stormur! syng
um yfirbót og angist; þér um hönd,
austræni jötunn! vefðu hretsins ól
og slá mig, opna örva þinna lind
yfir mig, treystu vilja minn og þol:
ég finn mitt morgunhvíta líknarland
laugaður þrautum skírður djúpri kvöl.
Snorri Hjartarson: Leit

Ljóð undir hættinum