Ferskeytt – hringhent (hringhend ferskeytla) – hringhenda | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Ferskeytt – hringhent (hringhend ferskeytla) – hringhenda

Kennistrengur: 4l:[o]-x[x]:4,3,4,3:aBaB
Innrím: 1B,2B,3B,4B
Bragmynd:
Lýsing: Ferskeytt – hringhent (hringhend ferskeytla) – hringhenda er eins og ferskeytt óbreytt að viðbættu innrími, aðalhendingum, þversetis í annarri kveðu í öllum braglínum.
Hátturinn kemur fyrir á 17. öld. Vera má að Þorvaldur Magnússon (1670–1740) hafi fyrstur ort heila rímu undir honum. Hringhenda varð síðar mjög vinsæl á 19. og 20. öld.

Dæmi

Greiða vindar gisin ský,
geislar tinda lauga.
Bjartar myndir birtast í
bláu lindarauga.
Dýrólína Jónsdóttir

Ljóð undir hættinum

≈ 1875  Páll Ólafsson
≈ 1925  Friðrik Hansen
≈ 1850  Höfundur ókunnur
Vor

Lausavísur undir hættinum