SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Samhent – oddhent (frumstiklað)
Kennistrengur:
4l:[o]-x[x]:4,4,4,4:aaaa
Innrím:
1B,1D,2D,3B,3D,4D
Bragmynd:
Lýsing:
Samhent – oddhent (frumstiklað) er eins og samhent óbreytt nema hvað í þessum hætti gera önnur kveða frumlína og fjórða kveða (endarímsliður) aðalhendingar langsetis.
Þessi háttur kemur þegar fyrir í nokkuð gömlum rímum, til dæmis er tíunda og síðasta ríma í Bósarímum ort undir honum en þær rímur eru líklega ortar um 1500. Þá eru og kveðnar undir honum fjórtánda ríma í Vilmundar rímum viðutan hinum eldri, sem líklega hafa verið ortar snemma á 16. öld, og tuttugasta ríma í rímum af Vilmundi viðutan eftir Hall Magnússon (d. 1601). Dæmi
Leiddi í sal með listar tal
ljúfan þennan sæmdar hal; hróðrar val að herma skal hvað þar verður meira hjal. Vilmundar rímur viðutan eldri XIV:34 Lausavísur undir hættinum |